Forsendan fyrir árangri er að skapa samfélag sem fólk vill búa í, ungir sem aldnir, þar sem þjónusta við íbúa er góð og mannlífi og menningu er gert hátt undir höfði. Öll okkar verkefni snúa að því að gera Skagafjörð skemmtilegri stað að búa á, sækja fram með atvinnulífinu og bæta þjónustu við íbúa. Hér eru nokkur handahófskennd verkefni sem við viljum ráðast í á kjörtímabilinu en þú getur smellt hér til að skoða öll verkefnin.
Hugmyndir okkar og sýn á framtíð Skagafjarðar
Ferðaþjónusta Skagafjörður hefur alla burði til að verða einn eftirsóttasti áfangastaður landsins. Tækifærin eru til staðar og við megum ekki láta þau renna okkur úr greipum.
Rósanna Valdimarsdóttir
Pistill Á D-listanum tókum við þá ákvörðun að fara með jákvæðni inn í kosningabaráttuna - tölum um okkur sjálf í stað þess að dvelja við það sem hefur misfarist hjá öðrum.
Jón Daníel Jónsson
Íþróttamál Íþróttaaðstaðan í Skagafirði er farin að dragast aftur úr. Stærsta verkefni næsta kjörtímabils er að hefja undirbúning að uppbyggingu fjölnota íþróttahúss sem mætir þörfum allra greina.
Guðlaugur Skúlason
Atvinnumál Forsenda aukinnar velferðar er aukin verðmætasköpun. Skagafjörður er öflugasta matvælaframleiðsluhérað landsins og tækifærin eru til staðar.
Magnús Barðdal Reynisson 18 einstaklingar sem vilja gera Skagafjörð skemmtilegri